Skráning er hafin fyrir Músíktilraunir 2016!

Skóli og frístund Menning og listir

""
Undankvöld Músíktilrauna fara fram 2.-5. apríl í Norðurljósum, Hörpu  en úrslitakvöldið er 9. apríl. Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þáttöku með því að senda inn umsókn á netinu og greiða þátttökugjald.  
Nægur tími er til undirbúnings fyrir ungar hljómsveitir sem vilja taka þátt. Nánast ómögulegt er að telja upp þær hljómsveitir og tónlistarmenn sem hafa nýtt þennan stökkpall til frekari afreka á tónlistarsviðinu. Tækifærið er einstakt og allir þeir sem telja sig eiga erindi á Músíktilraunir eru hvattir til að taka þátt.
 
Ungmenni á aldrinum 13-25 ára geta sótt um þáttöku með því að senda inn umsókn á netinu og greiða þátttökugjald. Undankvöld fara svo fram (4 kvöld) þar sem um 40 hljómsveitir keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið. 
 
Um 10-12 hljómsveitir fara venjulega í úrslit; fyrstu 3 sveitirnar hljóta síðan glæsileg verðlaun af ýmsum toga. Einnig eru efnilegustu / bestu hljóðfæraleikararnir valdir og vinsælasta hljómsveit meðal áhorfenda /hlustenda kosin með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt á Rás 2, auk þess sem að RÚV hefur tekið það upp og sýnt síðar.
 
Skráning á undankvöldin hófst í gær og stendur til 14. mars nk. 

Nánari upplýsingar um skráningu á undankvöldin má nálgast á heimasíðu muskitilraunir.is