Samrekinn leik- og grunnskóli á Kjalarnesi

Skóli og frístund

""
Skóla- og frístundaráð ákvað á fundi sínum í dag að stofna nýjan samrekinn leik- og grunnskóla á Kjalarnesi með samþættu frístundastarfi og tónlistarnámi. Skólinn verður fyrir börn á aldrinum 1-16 ára. 
Starfshópur sem hefur rýnt leiðir fyrir framtíðar skóla- og frístundastarf á Kjalarnesi lagði fram tvær tillögur að framtíðarlausn og varð þessi að niðurstöðu í skóla- og frístundaráði. Auglýsa skal eftir stjórnanda nýrrar skólastofnunar svo fljótt sem auðið er. Þá verður sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs falið að skipa starfshóp sem vinna á með skólastjóra að því að móta framtíðarsýn hinnar nýju stofnunar, gera tillögu að skipuriti sem tekur mið af sérstöðu stofnunarinnar, gera áætlun um ferli sameiningar og leiða upphaf hennar.
 
Með samreknum leikskóla og grunnskóla á Kjalarnesi og samþættri frístundaþjónustu og tónlistarskóla er stefnt að því að þjóna börnum, ungmennum og foreldrum frá upphafi leikskólagöngu til loka grunnskólaaldurs. Samrekinn skóli á samkvæmt tillögu starfshópsins að byggja á því góða starfi sem nú er í skóla- og frístundamálum á Kjalarnesi. Þá segir í rökstuðningi að slíkt fyrirkomulag veiti tækifæri á auknum faglegum ávinningi í skólastarfinu með aukinni samfellu í stefnumótun, heildstæðu skipulagi skólastarfs og meira flæði milli skólastiga. Jafnframt er bent á tækifæri til rekstrarlegrar hagkvæmni í nýtingu húsnæðis, innkaupum, starfsmannakostnaði, samþættari símenntun og starfsþróun.
 
Tillögur starfshópsins hafa verið til umsagnar í skólaráði og foreldrafélagi Klébergsskóla og leikskólans Bakkabergs, svo og í hverfisráði Kjalarness. Þá var haldinn opinn íbúafundur þar sem tillögurnar voru kynntar. 
 
Leikskólinn á Kjalarnesi, áður Berg, hefur frá árinu 2011 verið samrekinn með leikskóla í Staðahverfi undir heitinu Bakkaberg.