Borgarstjórn fundar í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum verður m.a. rætt um nýtt almenningssamgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu sem hefur verið kallað Borgarlínan.
Þá verður umræða um reglur Reykjavíkurborgar um stofnframlög og hvaða tækifæri eru fyrir borgina varðandi þau. Stofnframlög eiga að tryggja tekjulágum hópum aðgang að öruggu leiguhúsnæði.
Borgarstjórn mun einnnig ræða skýrslu starfshóps um sjálfbæran Elliðaárdal og umræða verður um plastpokalausa Reykjavík að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks. Einnig er á dagskrá umræða að beiðni Sjálfstæðisflokksins um húsnæðismál ungs fólks með fötlun.
Teknar verða fyrir þrjár tillögur Sjálfstæðisflokksins; um aðgerðir vegna framræsts lands innan borgarmarkanna, um takmörkun innkaupa á vörum sem innihalda plastagnir og um nóturnar á netið sem fjallar um opnun bókhalds borgarinnar.
Fundurinn hefst kl. 14 í Ráðhúsi Reykjavíkur og er opinn almenningi. Hægt er að fylgjast með útsendingu frá fundinum og nálgast fundargögn á slóðinni hér að neðan.