Listasafn Reykjavíkur býður uppá myndlistanámskeið í júní fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og 10-12 ára á Kjarvalsstöðum. Lögð er áhersla á að kynnast verkum og hugmyndafræði listamannsins Jóhannesar S. Kjarvals í gegnum leik, gleði og tilraunir.
Listasafn Reykjavíkur býður uppá myndlistanámskeið í júní fyrir börn á aldrinum 6-9 ára og 10-12 ára á Kjarvalsstöðum. Lögð er áhersla á að kynnast verkum og hugmyndafræði listamannsins Jóhannesar S. Kjarvals í gegnum leik, gleði og tilraunir. Gerðar verða tilraunir með arfleið Kjarvals og útfærslur prófaðar fyrir ýmsa miðla, ásamt því að fara í vettvangsferðir um nágrennið. Kennari á námskeiðinu er Þórdís Jóhannesdóttir myndlistarmaður.
Nánari upplýsingar veitir fræðsludeild í síma 411 6400 eða á fraedsludeild@reykjavik.is