Opnað fyrir umsóknir um götu- og torgsölu

Stjórnsýsla Umhverfi

""
Opnað verður fyrir úthlutun á nýjum leyfum fyrir götu- og torgsölu þriðjudaginn 15. mars kl. 9:00  á vef Reykjavíkurborgar og þurfa umsækjendur að vera með virkt aðgengi að Mínum síðum í Rafrænu Reykjavík.
 
Götusala er leyfisskyld og tekur til hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram á almannafæri utanhúss svo sem á torgum, gangstéttum og í almenningsgörðum. Ekki þarf þó að sækja um leyfi fyrir tombólum barna og ungmenna.
Gerðar eru kröfur um góða umgengni og að starfsemi standist allar heilbrigðisreglur. Götu- og torgsala á að auka fjölbreytni og þjónustu í sátt við umhverfið og sóst er eftir fjölbreyttri þjónustu.

Jafnræði við úthlutun

Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast og ræður það forgangi við úthlutun. Reglan „fyrstur kemur fyrstur fær“ er þannig í gildi og skapar ákveðið jafnræði með umsækjendum.  Eins og áður segir verður opnað fyrir umsóknir um götu- og torgsölu þriðjudaginn 15. mars kl. 9:00  og er það á „mínum síðum” á vef Reykjavíkurborgar (Rafræn Reykjavík). 
Upplýsingasíða fyrir götu- og torgsölu – reykjavik.is/torgsala. Gildistími leyfa er frá einum upp í tólf mánuði og er möguleiki á að endurnýja dag-og nætursöluleyfi til allt að þriggja ára. 

Markaðir og söluvagnar

Mögulegt er að sækja um nokkrar tegundir leyfa:
  • Markaðssala einyrkja er leyfi fyrir um 5 fermetra svæði á borgarlandi. Sala er heimiluð frá kl. 9:00-21:00. Leyfi eru veitt í einn til þrjá mánuði.
  • Markaðssala stærri viðburða er heimild fyrir margvíslega markaði. Skilgreina þarf í umsókn óskir um landsvæði, stærð þess og staðsetningu, tímalengd afnota, fjölda söluaðila, vöruframboð, útlit og umgjörð sölustarfsemi.
  • Dagsala  í miðborginni  er söluleyfi fyrir söluvagna eða sölubifreiðar á skilgreindum dagsölusvæðum. Sala er heimiluð frá kl. 09.00 - 21.00.
  • Hverfasala er dagsala á borgarlandi í hverfum utan miðborgarsvæðisins og geta allt að 5 söluaðilar verið samtímis með leyfi á sama hverfasvæði. Um sölubifreiðar gildir sú meginregla að þær má aðeins staðsetja á bílastæðum.
  • Nætursala er sala úr söluvögnum eða sölubifreiðum á skilgreindum svæðum frá kl. 22.00 - 04.00.
  • Rétt er að vekja athygli á að fyrir borgarhátíðir eins og 17. júní, Menningarnótt og Reykjavík pride, er sótt um sérstaklega og verður opnað fyrir þær umsóknir síðar.