Þriðjudaginn 20. september kl 13 verður opinn samlestur í Borgarleikhúsinu á verkinu Brot úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni.
Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.
Jóhann og Maríanna hafa verið gift í tíu ár. Þeim gengur vel, hafa náð langt í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja. Þangað til Jóhann tilkynnir Maríönnu að hann vilji skilja. Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir, gleðin, sorgin, vonin og frelsið – og öll uppáhaldslögin.