Opinn samlestur á Brot úr hjónabandi

Menning og listir

""

Þriðjudaginn 20. september kl 13 verður opinn samlestur í Borgarleikhúsinu á verkinu Brot úr hjónabandi eftir Ingmar Bergman. Þetta er liður í því að opna leikhúsið og skapa skemmtilegan formála að væntanlegum sýningum. Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni.

Fyrsta skrefið í æfingum leikrita er svokallaður samlestur. Þá kemur starfsfólk saman, ásamt listrænum stjórnendum og leikurum og lesa leikritið upphátt. Auk þess kynna leikstjóri, leikmynda- og búningahöfundar hugmyndir sínar og fyrir vikið er fyrsti samlestur oft eins konar hátíðarsamkoma. Þetta er upphaf langrar ferðar sem lýkur með pompi og prakt á frumsýningunni.

Jóhann og Maríanna hafa verið gift í tíu ár. Þeim gengur vel, hafa náð langt í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja. Þangað til Jóhann tilkynnir Maríönnu að hann vilji skilja.   Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir, gleðin, sorgin, vonin og frelsið – og öll uppáhaldslögin.

Verkið byggir á tíu þátta sjónvarpsseríu Ingmars Bergman sem sýnd var í sænska sjónvarpinu árið 1973 við svo miklar vinsældir að götur Svíþjóðar tæmdust. Síðar voru þættirnir sýndir um allan heim. Leiksviðsútfærslan var frumsýnd í leikstjórn höfundar árið 1981 í München og hefur síðan verið sýnd í fjölda leikhúsa um allan heim.
 
 Aðstandendur Höfundur: Ingmar Bergman  |  Þýðing: Þórdís Gísladóttir| leikstjóri: Ólafur Egill Egilsson | Leikmynd og búningar: Ilmur Stefánsdóttir| Lýsing: Kjartan Þórisson | Tónlist: Barði Jóhannsson | Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir  |  Hljóð: Baldvin Þór Magnússon |  Leikarar: Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir