Menningarfáninn er veittur fyrir framúrskarandi menningarstarf í skólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum borgarinnar.
Menningarfáninn byggir á menningarstefnu Reykjavíkurborgar 2014-2020 þar sem áhersla er lögð á að:
- Menning og listir séu snar þáttur í uppeldi og kennslu barna og ungmenna í borginni.
- Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs eigi góða samvinnu um listuppeldi við listamenn, söfn og menningarmiðstöðvar í borginni.
- Áhersla sé lögð á þátttöku barna, ungmenna og fjölskyldna í menningarlífinu og framlag þeirra til menningar metið að verðleikum.
Markmiðin með menningarfánanum eru að:
- Framlag barna til menningar og lista verði metið að verðleikum og gert sýnilegt í menningarlandslagi borgarinna.
- Styrkja meðvitund barna um menningararfinn og ýta undir skapandi og frumlega hugsun.
- Efla tengsl barna við nærsamfélag sitt með fjölþættri samvinnu milli þeirra, menningarstofnana og listamann
- Útfærsla menningarstefnu Reykjavíkurborgar kallist á við nýja menntastefnu ríkisins
- Auka þátt menningar og lista í námi og leik barna
- Auka fjölbreytni, víðsýni og virðingu fyrir lífi og menningu annarra með auknu menningarlæsi
- List og menning sé sýnileg og (gagn)virkur hluti af skólarýminu og umhverfi þess
- Rækta menningarlega sjálfsmynd barna
Menningarfáninn 2016 verður afhentur 8. september. Síðasti skiladagur umsókna er 26. ágúst. Umsóknir skilist á netfangið menningarfani@reykjavik.is