Opið fyrir umsóknir um Menningarfánann

Skóli og frístund Mannlíf

""
Menningarfáninn er veittur fyrir framúrskarandi menningarstarf í skólum, frístundamiðstöðvum og skólahljómsveitum borgarinnar.  
Menningarfáninn byggir á menningarstefnu Reykjavíkurborgar 2014-2020 þar sem áhersla er lögð á að:
  • Menning og listir séu snar þáttur í uppeldi og kennslu barna og ungmenna í borginni.
  • Starfsstaðir skóla- og frístundasviðs eigi góða samvinnu um listuppeldi við listamenn, söfn og menningarmiðstöðvar í borginni.
  • Áhersla sé lögð á þátttöku barna, ungmenna og fjölskyldna í menningarlífinu og framlag þeirra til menningar metið að verðleikum.
Markmiðin með menningarfánanum eru að:
  • Framlag barna til menningar og lista verði metið að verðleikum og gert sýnilegt í menningarlandslagi borgarinna.
  • Styrkja meðvitund barna um menningararfinn og ýta undir skapandi og frumlega hugsun.
  • Efla tengsl barna við nærsamfélag sitt með fjölþættri samvinnu milli þeirra, menningarstofnana og listamann
  • Útfærsla menningarstefnu Reykjavíkurborgar kallist á við nýja menntastefnu ríkisins
  • Auka þátt menningar og lista í námi og leik barna
  • Auka fjölbreytni, víðsýni og virðingu fyrir lífi og menningu annarra með auknu menningarlæsi
  • List og menning sé sýnileg og (gagn)virkur hluti af skólarýminu og umhverfi þess
  • Rækta menningarlega sjálfsmynd barna
Menningarfáninn 2016 verður afhentur 8. september. Síðasti skiladagur umsókna er 26. ágúst. Umsóknir skilist á netfangið menningarfani@reykjavik.is