Öðruvísi náttúrufræðikennsla

Skóli og frístund

""
Nemendur í 7. bekk í Fellaskóla fengu að kryfja líffæri svína.  
Nemendur í 7. bekk Fellaskóla hafa undanfarnar vikur verið að fræðast um mannslíkamann og einstök líffæri eins og lungu, hjarta, lifur og nýru. Í framhaldi af því voru fengin líffæri svína til krufningar, en þau eru talin svipa hvað mest til líffæra mannsins.
 
Nemendur unnu saman í pörum við að rannsaka svínshjörtu, lungu, barka, lifur, nýru og tungu. Mikið fjör var í kennslustofunni þegar nemendur skelltu sér í hlutverk vísindamanna og sögðust þeir hafa lært mikið af rannsóknum sínum.