Nýr samgöngustjóri Reykjavíkurborgar

Stjórnsýsla Skipulagsmál

""
Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn í starf samgöngustjóra á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar.
Þorsteinn mun taka við af Ólafi Bjarnasyni núverandi samgöngustjóra þegar hann lýkur störfum í byrjun sumars.
 
Þorsteinn er með B.Sc. gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. gráðu í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington í Seattle, Bandaríkjunum.
 
Hann á að baki farsælan feril sem stjórnandi og ráðgjafi á sviði samgöngu- og umhverfismála. Þorsteinn var sviðsstjóri umferðar- og skipulagssviðs verkfræðistofunnar Mannvits í fjögur ár, eða frá 2008-2010, en frá þeim tíma hefur hann verið fagstjóri samgönguhóps Mannvits. Hann stýrði opinberri stefnumótun í starfi sínu sem verkfræðingur samgönguáætlunar hjá innanríkisráðuneytinu. Hann hefur einnig, sem ráðgefandi verkfræðingur, stýrt stefnumótun stórra og metnaðarfullra verkefna fyrir Reykjavíkurborg.