Miðflétta í upphafi árs

Skóli og frístund

""
Starfsfólk í skóla- og frístundastarfi í Miðborg og Hlíðum hélt sameiginlegan starfsdag í upphafi árs. 
Um fimmhundruð starfsmenn skóla- og frístundasviðs í Miðborg og Hlíðum áttu góðan starfsdag í Háteigsskóla og Austurbæjarskóla í dag, en þar voru haldin erindi og vinnusmiðjur. Þetta er fyrsti sameiginlegi starfsdagur þessara faghópa í hverfinu, en sambærilegir starfsdagar hafa verið haldnir í öðrum hverfum, s.s. Breiðholtsbylgja og Vesturbæjarfléttan. 

 
Miðfléttan hófst í íþróttahúsi Háteigsskóla með tónlistarflutningi kvintetts úr skólahljómsveit Austurbæjar og stuttu ávarpi Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Því næst hélt Andri Snær Magnason rithöfundur erindi um inntak og gildi menntunar í ljósi samfélagsþróunar og umhverfismála og setti spurningarmerki við hvort áherslur í menntun barna og ungmenna væru alltaf réttar. Að því loknu var haldið í Austurbæjarskóla þar sem boðið var upp á 25 fjölbreyttar vinnusmiðjur þar sem kennarar og aðrir sérfræðingar miðluðu þekkingu sinni á jafnræðisgrundvelli.  Meðal þess sem fræðast mátti um var tilhögun og gildi morgunsöngs, gildi slökunar, góðrar hljóðvistar, menntun til sjálfbærni, fjölmenningu, söngvaleiki í leikskólanum og leiklistarkennslu. Þá var í vinnustofunni Klárir krakkar fjallað um þöglu og kvíðnu börnin í skólanum og hversu mikilvægt er að gefa þeim gaum. 
 
Sameiginlegir starfsdagar allra kennara og starfsfólks í frístundastarfi bjóða upp á mikilvægt flæði fagþekkingar milli skólastiga og starfsstaða en ekki síst betri persónulegra tengsla og sterkari innviða í grunnþjónustu við börn og ungmenni í hverfum borgarinnar. Óhætt er að segja að Miðfléttan hafi farið vel af stað með góðri þátttöku og áhugasömum smiðjugestum sem skemmtu sér vel og áttu gott samtal.