Frístundamiðstöðin Tjörnin tók á móti fjölskyldum í vetrarfríi, bæði á Kjarvalsstöðum og Vesturbæjarlauginni.
Hornsteinn forvarnarstarfs á vegum frístundamiðstöðva er að hlúa að samveru foreldra með börnum sínum. Þær bjóða allar upp á skipulagða dagskrá fyrir alla fjölskylduna í vetrarfríinu 20.-14. október.
Margir fengu spilakennslu félagsmiðstöðvarstarfsmanna á Kjarvalsstöðum í gær og tóku þátt í Hungurleikum á Klambratúni. Þá var boðið upp á veitingar innanhúss, kleinur, kaffi og djúsi. Veitingar biðu einnig þeirra fjölskyldna sem skelltu sér í Vesturbæjarlaugina til að taka þátt í buslu-quiz eða dansa vatns-zumba.
Almenn gleði var meðal gesta og vill Tjörnin þakka öllum kærlega fyrir daginn.
Njótum vetrarfrísins saman!