Ljósin kveikt á Oslóartrénu á Austurvelli í 64. skipti

Mannlíf Menning og listir

""

Ljósin á Oslóartrénu á Austurvelli verða tendruð sunnudaginn 27. nóvember. Jólatréð er nú þegar komið á sinn stað, 12 metra hátt íslenskt grenitré úr norska lundinum í Heiðmörk.

Dagskráin hefst klukkan 14.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur á frumsýningu norsku jólakvikmyndarinnar, Sólona og Lúðvík: Jól í Furufirði, sem Oslóarborg færir borginni að gjöf. Kvikmyndin hefur verið talsett á íslensku ogverður sýnd í Ráðhúsinu á sunnudögum klukkan 14.00 á aðventunni. Aðgangur ókeypis.

Klukkan 16.00 mun Erik Lunde, borgarfulltrúi Oslóarborgar, afhenda tréð formlega á Austurvelli. S. Björn Blöndal, formaður borgarráðs, veitir gjöfinni viðtöku fyrir hönd borgarinnar og flytur þakkarávarp. Að því loknu mun Völundur Ingi Steen Bjarnason 7 ára norsk-íslenskur drengur kveikja á jólaljósunum. Tendrun jólaljósanna á Oslóartrénu markar upphaf aðventunnar í borginni og minnir sem fyrr á áratuga vinasamband Reykjavíkur og Oslóarborgar.

Salka Sól og Valdimar syngja aðventuna inn ásamt einvalaliði tónlistarfólks. Lúðrasveit Reykjavíkur flytur nokkur vel valin lög og frést hefur að nokkrir jólasveinar hafi stungið af í bæinn og ætli að skemmta börnum og fullorðnum. Gerður G. Bjarklind kynnir dagskrána en þetta er í  17. skipti sem hún gerir það. 

Pottaskefill ellefti jólaóróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra  prýðir nú jólatréð. Í honum sameinast íslenskur menningararfur,  hönnun og mikilsvert málefni. Allur ágóði af sölu hans rennur til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna. Signý Kolbeinsdóttir hannaði óróann og leggur Snæbjörn Ragnar sson skáld til túlkunina. Júlía Óskarsdóttir, vinningshafi í stóru upplestrarkeppni grunnskólanna, flytur kvæði Snæbjörns um Pottaskefil. Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt verkefnið en óróar Styrktarfélagsins hafa verið eina skrautið á Oslóartrénu auk jólaljósanna.

Dagskrá hátíðarinnar verður túlkuð á táknmáli, heitt kakó og kaffi mun verma kalda kroppa og bílastæðahúsið í Ráðhúsinu verður opið til að auðvelda gestum aðgengi að hátíðarsvæðinu.

Á aðventunni verður jafnframt margt skemmtilegt í boði í borginni og er hægt að fylgjast með dagskránni á vefnum jolaborgin.