Sunnuás varð til við sameiningu leikskólanna Hlíðarenda og Ásborgar á árinu 2011.
Leikskólinn fagnaði fimm ára afmæli rétt fyrir sumarleyfi í júlí með útihátíð. Í tilefni afmælisins fékk leikskólinn líka umhverfisviðurkenninguna Grænfánann sem Landvernd úthlutar skólum fyrir umhverfismennt. Þá lék blásarakvintettinn Ventus Brass leik fyrir börnin og sett var upp sýning á verkum barnanna.
Í Sunnuási hefur alla tíð verið lögð rík áhersla á sjálfbærni, samskipti og skapandi starf, og einkunnarorð skólans eru; virðing, gleði og sköpun.
Fjölskyldur, starfsfólk og samstarfsfólk skólans skemmtu sér vel á afmælishátíðinni þar sem boðið var upp á grillaðar pylsur og afmælisköku úti í sumarblíðunni.
Sunnuás er sjö deilda leikskóli þar sem dvelja 146 börn samtímis. Leikskólastjóri er Ólöf Helga Pálmadóttir.