Forvarnir í leikskólastarfi er efni morgunverðarfundar Náum áttum hópsins að þessu sinni. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 16. mars klukkan 8.15 til 10.00 á Grand Hóteli, Sigtúni 38.
Frummælendur eru;
Linda Hrönn Þórisdóttir, leikskólastjóri á leikskólanum Kópahvoli, fjallar um barnavernd í leikskólum.
Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum og Rakel Ýr Ísaksen, leikskólakennari á leikskólanum Álfheiði fjalla um vináttuna sem forvarnir gegn einelti í leikskóla.
Jenný Ingudóttir, verkefnastjóri hjá Embætti landlæknis, flytur erindi um heilsueflandi leikskóla.