Fundur um breytingar á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands var haldinn miðvikudaginn 9. mars kl. 17:00 í Borgartúni 14 í Vindheimum á 7. hæð
Kynningarfundur vegna breytinga á deiliskipulagi Kennaraháskóla Íslands var haldinn á vegum umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Á fundinum var tillaga A2f arkitekta kynnt en hún felur í sér uppbyggingu á allt að 60 íbúðum fyrir eldri borgara og allt að 100 íbúðum fyrir námsmenn auk mögulegrar uppbyggingar á lóð Kennaraháskóla Íslands (Menntavísindasvið HÍ). Um er að ræða uppbyggingu í samræmi við gildandi Aðalskipulag Reykjavíkur 2010-2030.
Hér eru kynningar af fundinum og fundargerð: