Kúrdagur, fjölskyldujóga og Bollywood dans

Skóli og frístund Mannlíf

""
Fjölbreytt dagskrá barnamenningarhátíðar verður í boði alla helgina. Um að gera að skoða dagskrána og njóta helgarinnar með skemmtilegum menningarviðburðum barna.
Á morgun laugardag er vert að benda á  Kúrdag sem fer fram í Tjarnarbíói kl. 10. Um er að ræða nýja leikhúsupplifun fyrir ungbörn. Sýningin er upplögð kynning á leikhúsinu og hópleikjum. Greta Clough, höfundur og leikkona sýningarinnar, er leikhús- og brúðulistakona frá Bretlandi. Sýningin er hluti af UNGA - sviðslistahátíð ASSITEJ fyrir unga áhorfendur. Aðgangur er ókeypis.


Á morgun laugardag fer fram fjölskyldujóga í Ráðhúsinu frá kl. 10.30-11. Um er að ræða notalega samverustund fyrir alla fjölskylduna, þar sem gerðar eru skemmtilegar jógaæfingar. Börn og foreldrar fá tækifæri til að eiga góða samverustund í fjölskyldujóga.


Í Laugarnesskóla fer fram Heimshornaflakk frá kl. 13-16 á laugardag en um er að ræða  samvinnu nemenda, foreldra og annarra listamanna úr hverfinu þar sem hefðir ólíkra landa eru kynntar. Viðburðurinn er skipulagður af hópi foreldra úr skólanum og öllum opinn.


Á sunnudaginn ætla nemendur úr Söngskólanum í Reykjavík og Listaháskóla Íslands að flytja dúetta og aríur úr hinum ýmsu óperum á Listasafni Íslands frá kl. 13-14.


Á sunnudaginn verður jafnframt boðið uppá Bollywood dans fyrir alla fjölskylduna í Kramhúsinu frá kl. 14.15-15. Stjórnandi er Margrét Erla Maack.


Júrósvisjón stjarnan Gréta Salome Stefánsdóttir stjórnar svo söngstund með börnum í Hannesarholti frá kl. 15-15.30 á sunnudaginn.