Elstu börnin í leikskólunum Miðborg og Grænuborg - og yngstu skólabörnin í Austurbæjarskóla - hafa á síðustu vikur unnið saman verkefni um krumma.
Þetta skemmtilega samstarfsverkefni um mál og læsi er á milli leikskólanna tveggja og grunnskólans í Miðborginni. Á milli skólanna hafa farið frumort krummakvæði sem börnin ortu og svo hefur ljóðum verið svarað með mynd þar sem öll börnin leggja sitt af mörkum. Þá hafa börnin lært krummakvæði, bæði gömul og ný. Og í dag á Degi íslenskrar tungu hittust þau svo öll í leikskólanum Grænuborg, sungu lögin fyrir hvert annað og skoðuðu myndirnar sem urðu til í þessu skemmtilega verkefni.
Mikil gleði ríkti í hópnum því mörg grunnskólabörnin voru að koma í heimsókn í gamla leikskólann sinn og hitta gamla leikfélaga. Og leikskólabörnin nutu þess að þau eldri gátu lesið ljóðin sem þau komu með færandi hendi.