Innritun í skólahljómsveitir 2016-2017

Skóli og frístund Menning og listir

""
Tekið er á móti nýjum umsóknum í skólahljómsveitirnar fjórar í Reykjavík frá og með 29. apríl næstkomandi. Sækja þarf um í gegnum Rafræna Reykjavík.
Í skólahljómsveitum er boðið upp á metnaðarfullt hljóðfæranám með vel menntuðum og reynslumiklum kennurum. Námið tekur mið af aðalnámskrá tónlistarskóla. Næsta skólaár verða börn úr 3. og 4. bekk grunnskólans tekin inn í skólahljómsveitirnar. 


Umsóknarfrestur er til 10. júní vegna skólaársins 2016-2017, en hægt er að skila inn umsóknum allt árið vegna yfirstandandi skólaárs hverju sinni. Sótt er um í gegnum Rafræna Reykjavík. 



Þeir sem þegar hafa reynt að sækja um vegna næsta skólaárs eru beðnir að endurtaka umsóknina inn á rétt skólaár. Áður hefur verið opnað fyrir umsóknir í tónlistarskóla.