Borgarráð hefur heimilað útboð á framkvæmdum við endurnýjun Hverfisgötu á milli Klapparstígs og Smiðjustígs. Þetta er fjórði áfangi götunnar sem er endurnýjaður.
Borgarráð hefur heimilað umhverfis og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við endurnýjun Hverfisgötu á milli Klapparstígs og Smiðjustígs. Þetta er gagnger endurnýjun og samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar, Veitna ohf, Mílu og Gagnaveitu Reykjavíkur. Kostnaðaráætlun vegna hluta Reykjavíkur er 109 milljónir.
Skipt verður um allar lagnir og brunna í götunni auk þess sem gatan verður endurnýjuð og fegruð í sama stíl og þeir hlutar götunnar sem þegar hafa verið teknir í gegn.
Allt yfirborð göturýmisins verður endurnýjað, hjólastígar verða báðum megin götunnar, ný borgartré verða gróðursett og gatnamótin tekin í gegn.
Reiknað er með að framkvæmdin kosti alls 191 mkr. Haft verður samráð við hagsmunaaðila við götuna, t.a.m. uppbyggingaraðila við Hljómalindarreit vegna þeirra takmarkana sem gera þarf á umferð á framkvæmdatímanum.
Síðasti hluti Hverfisgötu, frá Smiðjustíg að Lækjargötu, verður tekinn í gegn á næstu árum en ekki er komin nákvæm tímasetning á þær framkvæmdir.