Hvatningarverðlaun fyrir framsækið frístundastarf voru afhent á árlegri fagráðstefnu starfsfólks frístundamiðstöðvanna í dag.
Fjölmennt var á árlegri fagráðstefnu starfsfólks frístundamiðstöðvanna í borginni sem haldin var í Gerðubergi í dag undir yfirskriftinni Höfuð í bleyti. Dagurinn hófst á afhendingu hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið frístundastarf og afhenti Skúli Helgason formaður og Eva Einarsdóttir fulltrúi í ráðinu verðlaunin.
Frístundamiðstöðin Miðberg fékk hvatningarverðlaunin fyrir verkefnið Tómstundamenntun sem miðar að því að gera unglingum í Breiðholti grein fyrir því hvernig þeir geta notað frítímann betur. Forstöðumenn og aðstoðarforstöðumenn félagsmiðstöðva Miðbergs fóru í samstarf við grunnskólana í Breiðholti um að hitta alla nemendur í 8. og 9. bekk í fjögur til sex skipti. Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að það að hafa nægan frítíma bætir ekki lífsgæði nema að honum sé varið á árangursríkan hátt. Miðberg fór í samstarf við Vöndu Sigurgeirsdóttur lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ sem leiðbeindi starfsfólki við þróun og framsetningu verkefnisins.
Frístundaheimilið Neðstaland við Fossvogsskóla fékk hvatningar verðlaun fyrir leiklistarstarf, en síðastliðin 6 ár hefur leiklist og önnur sviðslist verið fastur liður í fagstarfinu með börnum í 3. og 4. bekk. Leiksýningar hafa verið settar upp ár hvert og staðið fyrir hæfileikakeppni þar sem allir fá að njóta sín. Meðal þeirra verka sem hafa verið sett upp eru: Skilaboðaskjóðan, Dýrin í Hálsaskógi, Galdrakarlinn í Oz og Kardimommubærinn.
Frístundamiðstöðin Kampur fékk hvatningarverðlaun fyrir verkefnið Eitthvað illt á leiðinni er, ritsmiðjur sem leiddu til útgáfu samnefndrar bókar vorið 2015. Börnin skrifuðu sínar eigin draugasögur og birtust 19 þeirra í bókinni. Þær voru myndskreyttar af mörgum af færustu myndskreytum landsins og mikið lagt í hönnun og útlit. Verkefnið miðaði að því að efla sköpunarmátt og frjóa hugsun barna og sýna þeim hvers þau eru megnug í sögugerð, auk þess að efla lesskilning, valdeflingu, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Hafsteinn Vilhelmsson starfsmaður í frístundamiðstöðinni Miðbergi fékk sérstaka viðurkenningu fyrir mikilvægt framlag í starfi kvikmyndaklúbba fyrir 3. – 4. bekk í frístundaheimilum, hæfileikakeppnina Breiðholt got talent og tækni og tækjadeild Miðbergs. Hafsteinn hefur verið frumkvöðull í að kynna kvikmyndagerð fyrir börnum á frístundaheimilum þar sem börnin læra að búa til stuttmynd, fara frá hugmynd til framkvæmdar og uppskera verkefnisins er í formi kvikmyndahátíðar. Þá er hann lykilmaður í einum af stærstu viðburðum frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs sem er hæfileikakeppni barna- og unglinga sem kallast Breiðholt got talent. Keppnin var fyrst haldin árið 2009 og hefur vaxið og dafnað með árunum.
Hvatningarverðlaunin skóla - og frístundaráðs eiga að veita starfsfólki hvatningu í starfi og stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi. Verðlaunin eru rós í hnappagat starfsins sem þau hlýtur, viðurkenning á vel unnu verki í þágu barna og foreldra og staðfesting þess að starfið sé fyrirmynd annarra á því sviði sem um ræðir.
Þegar hvatningarverðlaunin höfðu verið afhent á fagráðstefnunni í Gerðubergi flutti Vigdís Jakobsdóttir aðjúnkt við Listaháskólann fróðlegt erindi um gildi lista og skapandi starfs í frítímanum. Síðan var boðið upp á 29 málstofur í fjórum lotum þar sem fjallað var um fjölbreytt verkefni og viðfangsefni frístundamiðstöðvanna og miðlað á jafningagrundvelli. Meðal þess sem fjallað var um í málstofum var vináttufærni, upplýsingatækni í frístundastarfi, jafnréttisstarf, forvarnir, útileiki, spunaspil og nemendaráð.