Hátíðlegt var í leikskólanum Hálsaskógi á bóndadaginn þegar skólinn fékk viðurkenningu fyrir markvissa umhverfismenntun.
Í tilefni bóndadagsins buðu börnin öllum körlum í fjölskyldu sinni í morgunverð og komu feður, afar, bræður og frændur í leikskólann og gæddu sér á ljúffengum brauðbollum með tilheyrandi.
Næst var komið að afhendingu Grænfánans. Fulltrúi Landverndar kom og afhenti þessa alþjóðlegu viðurkenningu fyrir umhverfisstarfið í leikskólanum, en Hálsaskógur fékk nú fánann í annað sinn síðan hann var sameinaður.
Í hádeginu gæddu svo börnin sér á þorramat sem var borinn fram á hlaðborð í sölum leikskólans.