Friðarsúla tendruð fyrir Yoko Ono

Mannlíf Menning og listir

""
Friðarsúlan í Viðey verður tendruð fimmtudaginn 18. febrúar kl. 19 í tilefni af afmælisdegi Yoko Ono og mun loga á henni þar til kl. 9 þann 19. febrúar.
Friðarsúl­an er útil­ista­verk eft­ir Yoko Ono sem var reist í Viðey árið 2007 til að heiðra minningu Johns Lennons. Lista­verkið er tákn fyr­ir bar­áttu Ono og Lennons fyr­ir heims­friði. 
 
Friðarsúl­an, tek­ur á sig form óska­brunns en á hana eru graf­in orðin „hugsa sér frið“ á 24 tungu­mál­um en enska heitið er vís­un í lagið „Imag­ine“ eft­ir John Lennon. 
 
Friðarsúlan er samstarfsverkefni Yoko Ono, Reykjavíkurborgar, Borgarsögusafns Reykjavíkur, Listasafns Reykjavíkur og Orkuveitu Reykjavíkur.