Forvarnardagurinn 12. október

Skóli og frístund

""

Á forvarnardegi 12. október verður augum m.a. beint að notkun rafsígarettna meðal ungmenna, en hún hefur aukist mikið á undanförnum árum. 

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og fulltrúar allra þeirra sem standa að Forvarnardeginum 12. október efndu til blaðamannafundar í Langholtsskóla í dag til að kynna dagskrá hans og áherslur. Árlega fer fram dagskrá í flestum grunnskólum landsins á forvarnardegi þar sem sýnd er kvikmynd og rætt um hvað skiptir mestu máli til að afstýra neyslu fíkniefna meðal barna og unglinga. Forvarnardagurinn er nú haldinn í ellefta sinn í grunnskólunum.

Að þessu sinni verður augum beint sérstaklega að notkun rafsígarettna meðal barna og unglinga en nýjustu tölur Rannsókna & greiningar frá þessu ári sýna að um fjórðungur nemenda í 10. bekk á landinu hefur notað rafrettur alla vega einu sinni um ævina. Samsvarandi hlutfall yfir venjulegar sígarettur er um 16%. 

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna jafnframt að neysla á rafrettum meðal barna og unglinga helst í hendur við auknar líkur á neyslu á öðrum vímuefnum. 

Nýjustu kannanir meðal unglinga í reykvískum skólum sýna að einungis lítið hlutfall nemenda neytir áfengis eða tóbaks eða á bilinu 1-3%. 

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði á blaðamannafundinum að árangur forvarnastarfs í Reykjavík hefði vakið athygli víða um lönd. „Á Íslandi erum við að ala upp efnilegustu kynslóð allra tíma,“ sagði borgarstjóri.

Guðni Th. Jóhannesson  gekk um Langholtsskóla að loknum blaðamannafundi í skólanum í morgun og heilsaði upp á nemendur sem tóku honum fagnandi og höfðu um margt að spjalla við forseta sinn.