Fögnum fjársjóði tungumálanna

Skóli og frístund

""
Í skóla- og frístundastarfi borgarinnar eru töluð yfir 70 tungumál af börnum, foreldrum og starfsfólki. Sunnudaginn 21. febrúar verður alþjóðlegur móðurmálsdagur Unesco haldinn hátíðlegur. 
Móðurmálsdegi UNESCO verður fagnað hér á landi og víða um heim með áherslu á gæði í tungumálanámi barna, bæði móðurmáli og tungumáli skólans. 
 
Dagskrá verður fyrir alla fjölskylduna í menningarhúsinu Gerðubergi á móðurmálsdeginum og hefst dagskráin kl. 14:00 með skrímslasmiðjum og fl. 

Sjá nánar www.borgarbokasafn.is - Viðburðir
 
Í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar eru töluð yfir 70 tungumál sem ber að fagna sem mikilvægum menningarforða. Á heimasíðu alþjóðlega móðurmálsdagsins má skrá tungumálaforðann í hverjum skóla. 
 
Í stefnu um fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf - Heimurinn er hér - er bent á ýmsar leiðir til að vinna með fjölbreytt móðurmál. Einnig eru ýmsar hugmyndir að skemmtilegu tungumálanámi í hugmyndabanka Tungumálatorgsins. 
 
"Móðurmál eru hluti af okkur og það er okkar dásamlegi réttur að læra og nota þau. Öll elskum við tungumál og viljum vera stolt af þeim hvar sem við erum stödd í heiminum." Þetta segir Renata Emilsson Peskova, formaður Móðurmáls – samtaka um tvítyngi sem koma að móðurmálskennslu tvítyngdra skólabarnaí Reykjavík.