Breyttur opnunartími á frístundaheimilum

Skóli og frístund

""
Borgarráð samþykkti í dag að breyta opnunartíma frístundaheimila þannig að þau verði opin til kl. 17 í stað 17:15.
Breyting á opnunartímanum tekur gildi frá og með upphafi næsta skólaárs, eða 22. ágúst 2016.
 
Með því að loka stundarfjórðungi fyrr en áður er áætlað að ná megi fram hagræðingu sem nemur um 4 milljónum á árinu 2016 og um 11 milljónir á árinu 2017. Breytingin á opnunartíma frístundaheimilanna er í samræmi við þjónustu leikskólanna sem loka kl. 17:00.

 

Samkvæmt könnun nýta 200 börn af þeim rúmlega 4.000 sem eru á frístundaheimilum borgarinnar þjónustuna milli kl. 17 og 17:15.