Tillaga um flutning Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna í Ráðhús Reykjavíkur og umræða um málefni Kjalarness eru meðal þess sem verður á dagskrá fundar borgarstjórnar þriðjudaginn 15. mars.
Fundir borgarstjórnar eru öllum opnir í sal borgarstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefst fundurinn kl. 14.
Borgarfulltrúar munu ræða fjórar tillögur Sjálfstæðisflokksins á fundinum. Þær eru eftirfarandi.
• Tillaga um að heimilt verði að opna fundi ráða og nefnda og hefja beinar útsendingar frá þeim
• Tillaga um að Sæbraut og Geirsgata verði lagðar í umferðarstokk
• Tillaga um flutning Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna, Höfuðborgarstofu og skrifstofu menningar- og ferðamálasviðs í Ráðhús Reykjavíkur
• Tillaga um verkbókhald
Þá eru umræður um fjögur önnur mál á dagskrá fundarins.
Umræða um Perlu norðursins, sbr. 30. lið fundargerðar borgarráðs frá 3. mars sl. (að beiðni borgarfulltrúa Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata)
Umræða um biðlista eftir sérfræðiþjónustu skóla (að beiðni borgarfulltrúa Framsóknar og flugvallarvina)
Umræða um óviðunandi viðhald gatna (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina)
Umræða um málefni Kjalarness (að beiðni borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og flugvallarvina)
Nánari upplýsingar um tillögurnar og fundargögn.
Nánari upplýsingar um tillögurnar og fundargögn.