Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heimsótti Breiðagerðisskóla og Háaleitisskóla í dag.
Skólaheimsóknirnar í Háaleiti og Bústöðum hafa verið afar ánægjulegar en borgarstjóri er þessa vikuna með bækistöðvar sínar í þessu hverfi, eða í þjónustumiðstöðinni í Efstaleiti. Hann hefur kynnt sér skólastarfið, ástand skólahúsnæðis og skólalóða og spjallað við starfsfólk og nemendur.
Nemendur í Háaleitisskóla notuðu tækifærið þegar borgarstjóra bar að garði með fylgdarliði og báru fram óskir um úrbætur á skólalóðunum. Í Hvassaleiti vilja nemendur fá nýjan sparkvöll og í Álftamýri fleiri leiktæki.
Hanna Guðbjörg Birgisdóttir, skólastjóri í Háaleitisskóla, fylgdi borgarstjóra um skólann þar sem hann kynnti sér m.a. nýja einhverfudeild við skólann og almennt skólastarf sem fram fer á tveimur starfsstöðvum; Hvassaleiti og Álftamýri.
Borgarstjóri hefur nú heimsótt alla grunnskóla í Háaleiti og Bústöðum og í kvöld verður opinn íbúafundur í Breiðagerðisskóla og hefst hann kl. 20:00.