Blús í Spennistöðinni

Mannlíf Menning og listir

""

Næstkomandi laugardag 8. október kl. 13 verður blúsað í Spennistöðinni -  félags- og menningarmiðstöð miðborgarinnar sem er við hlið Austurbæjarskóla.

Blússmiðja opnar þá í Spennistöðinni sem blúsfrömuðurinn Halldór Bragason, íbúi í miðbænum og fyrrum nemendi í Austurbæjarskóla og Pétur Hafþór Jónsson tónmenntakennari í Austurbæjarskóla leiða. Íbúar miðborgarinnar eru hvattir til að mæta með hljóðfærin sín og taka þátt eða bara mæta með velstillt eyru  og hlusta á nágranna sína blúsa af hjartans lyst.

„Allir sem vettlingi geta valdið eiga að mæta með hljóðfæri eða bara búsáhöldin sín, harmónikkur, fiðlur og öll þau hljóðfæri sem þau eiga og ræða blús og spila blús“ segir Dóri Braga í áskorun til vina og nágranna. 

Blússmiðjan er á dagskrá verkefnisins Heil brú sem Íbúasamtök Miðborgar standa fyrir í samstarfi við Austurbæjarskóla, Foreldrafélag Austurbæjarskóla og félagsmiðstöðina 100og1 og Forvarnarsjóður Reykjavíkurborgar styrkti verkefnið. Markmiðið með verkefninu er að bæta hverfisandann og samheldnina í hverfinu.  Það er gert með því að halda smiðjur og málþing á laugardögum í Spennistöðinni og eru þær ætlaðar öllum íbúum í miðborginni, óháð aldri, uppruna og skoðunum. Þar á að ræða, skapa og leika sér saman og öll fjölskyldan er velkomin. Smiðjurnar eru öllum opnar og að kostnaðarlausu.