Barnamenningarhátíð var sett með mikilli gleðihátíð í Eldborgarsal Hörpu í morgun. 1.450 nemendur í 4. bekk grunnskólanna í borginni skemmtu sér konunglega á opnunarhátíðinni.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri setti hátíðina formlega með aðstoð barnanna en síðan hófst fjölbreytt dagskrá þar sem margbreytileikanum í íslensku samfélagi var fagnað með ýmsu móti, s.s. hipphopp dansi, atriði úr leiksýningu Þjóðleikhússins Umhverfis jörðina á 80 dögum og tónlist.
Opnunarhátíðin náði hámarki þegar hljómsveitin Pollapönk steig á svið og tók lagið sem samið var sérstaklega fyrir hátíðina; Litríkir sokkar og vettlingar. Allur salurinn tók undir enda hafa börnin æft lagið síðustu daga. Lagið sem er samstarfsverkefni Barnamenningarhátíðar, UNICEF, Rauða krossins í Reykjavík og Reykjavík bókmenntaborgar UNESCO vísar til að þess að með aukinni fjölbreytni verður samfélagið litríkara og skemmtilegra.
Eftir hádegið stigu nær 800 leikskólabörn á stokk og sungu á tvennum tónleikum lög eftir Hildigunni Rúnarsdóttur undir heitinu Hú og hæ vindur þýtur . Tónleikarnir voru samstarfsverkefni Tónskóla Sigursveins við yfir 30 leikskóla í Reykjavík, en jafnan er fyrir Barnamenningarhátíð unnið með sönglög eftir þekkt íslensk tón- og ljóðskáld. Sjá myndband frá tónleikunum.
Nú tekur við hlaðborð 150 menningarviðburða fyrir börn á öllum aldri fram til 24. apríl og verða þeir í öllum hverfum, menningarstofnunum og í Ráðhúsinu.