Auglýst eftir umsóknum um þróunstyrki til skóla- og frístundastarfs

Skóli og frístund

""
Styrkirnir eru veittir til nýbreytni og nýjunga í fagstarfi skóla og frístundamiðstöðva.
Auglýst er eftir umsóknum um þróunarstyrki til skóla- og frístundastarfs á árinu 2017. Umsóknir skulu hafa borist skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12-14, í síðasta lagi 1. október 2016 á þar til gerðum eyðublöðum.
 
Þróunarstyrkjum skóla- og frístundaráðs er úthlutað árlega í samræmi við áherslur sem settar eru í starfsáætlun sviðsins. Markmiðið er að styðja við ýmis verkefni sem stuðla að nýjungum, rannsóknum eða nýbreytni í uppeldis- og fagstarfi leikskóla og grunnskóla og í frístundastarfi.
 
Vakin er athygli á að ekki eru tilgreindar ákveðnar áherslur þróunarstyrkja skóla- og frístundaráðs fyrir árið 2017 en bent á áherslur og forgangsröðun í starfsáætlun SFS 2016.