32 fengu úthlutað úr Menningarnæturpottinum

Mannlíf Menning og listir

""
Alls fengu 32 verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans í gær en hægt verður að sjá afrakstur þeirra á Menningarnótt þann 20. ágúst. Veittir voru styrkir á bilinu 50-250 þúsund kr. til einstaklinga og hópa, samtals þrjár og hálf milljón kr. Um er að ræða samstarfsverkefni Landsbankans og Höfuðborgarstofu en bankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi.

Starfshópur á vegum Höfuðborgarstofu valdi styrkþegana úr hópi 125 umsókna en þetta er í sjöunda skipti sem veitt er úr Menningarnæturpottinum. Við úthlutunina var lögð áhersla á að styrkja skemmtilega og frumlega viðburði sem tengjast Grandasvæðinu en helmingur verkefna sem fengu styrki eru þaðan.
 
Landsbankinn mun til viðbótar við þessa styrki standa fyrir árvissri dagskrá í útibúi sínu í Austurstræti á Menningarnótt. 
 
Menningarnótt verður haldin í 21. skipti laugardaginn 20. ágúst. Þá fylla stórir og smáir viðburðir götur og torg miðborgarinnar, húsasund, garða, gallerí, verslanir, menningarstofnanir og heimahús. Í lok Menningarnætur verður að vanda glæsileg flugeldasýning í boði Reykjavíkurborgar.
 
Grandasvæðið er áherslusvæði Menningarnætur í ár en jafnframt er vakin sérstök athygli á Grjótaþorpinu í hjarta Reykjavíkur en þar verður sett upp sýning í tilefni af 230 ára afmæli Reykjavíkur. Ísafjarðarbær sem fagnar 150 ára afmæli í ár, er gestasveitarfélag Reykjavíkurborgar á Menningarnótt.
 
Ísfirðingar verða með ýmsa viðburði í Ráðhúsi Reykjavíkur auk þess sem lokaatriði Tónaflóðs Rásar 2 er tileinkað Ísafjarðarbæ.
 
Yfirskrift Menningarnætur er eins og áður  ,,Gakktu í bæinn“ og vísar til þeirrar gömlu íslensku venju að bjóða gesti velkomna og gera vel við þá.
 
Menningarnótt er þátttökuhátíð sem byggir á framlagi fjölda aðila sem standa að menningarlífi í borginni og annarra sem nota þetta tækifæri til að setja svip sinn á borgarlífið. Markmið hátíðarinnar er að vekja athygli á því fjölbreytta menningarlífi sem á sér stað í borginni og hvetja borgarbúa til þátttöku.