Ylströndin verður lokuð um óákveðinn tíma vegna bilana í stjórnbúnaði.
Bilunin kom upp í morgun og er unnið að viðgerð sem talið er að geti tekið einhvern tíma. Fjölmargir leggja leið sína á Ylströndina til þess að fara í sjósund og verða þeir því miður frá að hverfa og beðist er velvirðingar á því. Ylströndin verður opnuð á ný um leið og viðgerð lýkur.