Norræn verðlaunasamkeppni um sjálfstætt líf er keppni um tæknilausnir fyrir aldraða og fatlað fólk, sem staðið hefur frá áramótum. Af 414 innsendum hugmyndum eru 25 enn í keppni og þar af þrjár íslenskar hugmyndir.
• Ylgarðurinn (Thermal wintergarden) undir verkstjórn Þórdísar Harðardóttur, er hugmynd um að með því að setja upp ylgarð í híbýlum fólks er hægt að bæta bæði andlega líðan og líkamlega heilsu manna.
• Lipri ferðalangurinn (Agile Traveller) undir verkstjórn Ósk Sigurðardóttur, er app sem auðveldar hreyfihömluðum að komast leiðar sinnar. Útfærslan gæti reynst öllum vel í að auðvelda ferðir sínar í nýju umhverfi.
• E-21, sjálfstæð og Örugg æviár (Safe and Independent Ageing), sem er verkefni unnið í samvinnu Íslendinga og Dana undir verkstjórn Hauks Axelssonar og Nicolai Söndergaard Laugesen. Það eru fyrirtæki eins og Falck og Philips sem koma að þróun þessa verkefnis. Verkefnið gengur út á að setja upp nema á heimilum fólks sem láta vita ef eitthvað óvenjulegt er í gangi sbr. ef vatn hefur runnið óeðlilega lengi eða að ekki hefur verið gengið um baðherbergi í langan tíma.
Íslensku keppendurnir voru með vinnusmiðju sl. föstudag, 9. október, þar sem þau kynntu hugmyndir sínar. Þarna gafst Íslendingunum tækifæri til að selja sínar hugmyndir með stuttum kynningum eða pitching en kúnstin er að koma hugmynd þinni á framfæri á þremur mínútum. Þessari kynningar verða svo að vera fullunnar þegar kemur að úrslitakynningum í Stokkhólmi í desember.
Auk Íslendinganna hélt Finninn Juhan Kronquist, ráðgjafi frá Hellon, fyrirlestur um sköpunarferlið í gerð nýrra hugmynda og Martin Sölvmose, gestakeppandi frá Danmörku, sagði frá hugmynd sinni um sjónstýrðan hjólastól, Gaze driver.
Það voru íslensku keppendurnir sem riðu á vaðið með vinnusmiðju en næstir í röðinni eru Finnar, 21. október, þá Danir 27. október, Norðmenn 30. október og loks Svíar 3. nóvember.
Í desember ákveður svo dómnefnd hvaða fimm hugmyndir halda áfram í úrslitahóp þessarar keppni. Þeim þátttakendum gefst tækifæri til að fullvinna sína hugmynd og láta á hana reyna með markhóp. Úrslitahugmyndirnar 25 þykja allar góðar og erfitt val bíður dómnefndar.
Höfuðborgir Norðurlandanna fimm, Osló, Kaupmannahöfn, Stokkhólmur, Helsinki og Reykjavík, ásamt Nordic Innovation, Norræna nýsköpunarmiðstöðin, standa að þessari samkeppni um lausnir í velferðarþjónustu.