Valdeflandi fræðslustarf Vinnuskóla Reykjavíkur

Umhverfi

""

Vinnuskóli Reykjavíkur stendur fyrir öflugu starfi til að verja nemendur fyrir eigin fordómum og annarra. Eva Dögg Guðmundsdóttir fræðsluleiðbeinandi fjölmenningar hjá Vinnuskóla Reykjavíkur segir reykvísk ungmenni reiðubúin til að ræða fjölmenningarlegar áskoranir í samfélaginu og skoða eigin viðhorf með opnum hætti.

Valdeflandi fræðslustarf til að auka borgaralega samkennd, umburðarlyndi og færni í íslensku samfélagi er veitt á fræðslusviði Vinnuskóla Reykjavíkur í sumar. Fræðslan er bæði fyrir nemendur í níunda og tíunda bekk með íslensku að móðurmáli og sem annað móðurmál.

Tvíþætt fræðsluáætlun var gerð fyrir sumarið 2015 sem tekur mið af ólíkum þörfum nemenda, m.a. út frá stefnu skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar um fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf. Vinnuskólinn hefur boðið upp á slíka fræðslu í áratug en gerir það nú með breyttu sniði. Áhersla hefur verið á fræðslu og félagslega styrkingu með vettvangsferðum í Reykjavík, leikjum og skapandi verkefnum.

„Ákveðið var að nemendur með annað móðurmál en íslensku færu í þrjár fræðsluferðir í sumar um Reykjavík með það að leiðarljósi að skapa þekkingu, færni og viðhorf sem efla þau til þátttöku í íslensku samfélagi“, segir Eva Dögg Guðmundsdóttir fræðsluleiðbeinandi fjölmenningar hjá Vinnuskóla Reykjavíkur sem hefur umsjón með fræðslunni en hún er með meistaragráðu í menningar- og innflytjendafræðum og uppeldis- og menntunarfræðum frá Háskólanum í Hróarskeldu.

Nemendur fóru í meðal annars í VR og fræddust um vinnumarkaðinn og réttindi, starfsemi lögreglustöðvarinnar í Kópavogi og starfið í Alþingishúsinu og Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem þau fengu einnig fræðslu um mannréttindi og muninn á borgarkerfinu og Alþingi.

Þau fengu einnig tækifæri til að segja frá sjálfum sér og hvernig reynsla það er að hafa annað móðurmál en íslensku í samfélaginu. Nemendur lýstu ánægju sinni með fræðsluna og sögðu hana gagnlega því að þau vissu nú meira en áður um Reykjavík, atvinnumarkaðinn og muninn á starfsemi Alþingis og Reykjavíkurborgar.

Opinberir og duldir fordómar

Flestir innflytjendur búa í Reykjavík eða ríflega 14.000 eða 11% íbúa borgarinnar. Vinnuskólinn bauð að þessu sinni öllum nemendum í póstnúmeri 111 og 109 upp á almenna fræðslu um fjölmenningu, sem er nýtt á nálinni. Farið var yfir hvernig duldir fordómar gætu birst og hvernig hægt væri að greina staðalmyndir. Þá var fjallað um kerfisbundna mismunun og hvernig ungmennin gætu greint betur eigin skekkjur og hugmyndir um hvort annað.

Opinberir fordómar eru t.d. rasískar athugasemdir sem geta verið alhæfðar á hópa. Þau lærðu einnig að eitt af einkennum duldra fordóma er að gefa þeim sem hafa sama uppruna og þau sjálf fyrirfram jákvæða einkunn en aftur á móti þeim sem eru af öðrum uppruna, með aðra trú og lífsskoðanir neikvæða einkunn. Þetta gerist hugsunarlaust og án könnunar og veldur mismunun.

Eva Dögg segir að þetta geti til dæmis haft kerfisbundin áhrif á vinnumarkaði og leigumarkaðnum, en nýleg skýrsla Fjölmenningaseturs opinberar að hærra hlutfall fólks af erlendum uppruna glímir við atvinnuleysi en íslenskir ríkisborgarar. Ástæðan gæti falist í duldum fordómum.



Fræðsluefnið var kynnt á líflegan hátt í Vinnuskólanum þar sem hver fræðslustund byrjaði á leik sem sýndi á myndrænan hátt umræðuefni dagsins. Ungmennin settu sig í spor minnihlutahópa og þau lýstu hvaða áskoranir geta verið í íslensku samfélagi þegar íslenska er annað tungumál. Eftir leikina voru umræður og fræðsla sem nemendur tóku virkan þátt í.

„Reykvísk ungmenni virðast reiðubúin til að ræða fjölmenningarlegar áskoranir í samfélaginu og skoða eigin viðhorf með opnum hætti“, segir Eva Dögg og nefnir að eitt ungmennanna hafi skrifað eftirfarandi um fræðsluna: „Spilið sýndi raunverulega mynd af veruleikanum.“

Ánægja með starfið

Viðhorfskönnun var send til nemenda Vinnuskólans til að meta starfið, þar kom í ljós að nemendur voru ánægðir og gáfu mismunandi fræðsluþáttum einkunnina 4,0 til 4,4 á línulegum 1 -  5 stiga kvarða þar sem 5 var fullt hús stiga.

Eva Dögg segir að fræðimenn á sviði fordóma og félagsvísinda hafi bent á að dregið hafi úr opinberum fordómum undanfarna hálfa öld en því miður er ekki hægt að fullyrða það sama um dulda fordóma. „Til mikils er að vinna því fræðimenn segja að markviss fræðsla á ungdómsárum geti dregið úr fordómum á fullorðinsárum“, segir hún.

„Starfið gengur vonum framar og nú sjáum við hvort að næsti hópur nemenda sem verður í Vinnuskólanum í júlí verði jafn virkur og opinn fyrir fræðslunni og fyrri hópurinn“, segir Eva Dögg Guðmundsdóttir.

Tengill

Vinnuskóli Reykjavíkur.

Stefna um fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf  í skólum og frístundamiðstöðvum borgarinnar.