Tófuparið Frosti og Flandra eignuðust myndarlegan hóp yrðlinga sl. vor. Refafjölskyldan bjó á óðali sínu í refagirðingu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í sumar en þegar haustar yfirgefa yrðlingar óðöl foreldra sinna. Yrðlingarnir fengu örlitla hjálp í leit sinni að nýjum óðölum og dvelja þeir nú í dýragörðum í Noregi og Svíþjóð.
Þetta er í fyrsta sinn sem starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sendir dýr til dvalar í öðrum dýragörðum en slíkt er alvanalegt milli dýragarða erlendis. Áður en þau fóru utan gengust yrðlingarnir undir dýralæknisskoðun og fengu bólusetningar.
Einn yrðlinganna fór í dýragarðinn í Kristiansand í Noregi og fjórir til Järvzoo í Svíþjóð. Tilgangur flutninga milli dýragarða er fyrst og fremst að tryggja fjölbreytni innan stofnsins og fullvíst þykir að hinar brottfluttu tófur eigi sér enga blóðskylda ættingja í þessum görðum. Í Skandinavíu eiga tófur mjög undir högg að sækja. Til dæmis er talið að í Noregi finnist aðeins um 50 dýr og eru tófur þar alfriðaðar. Ástæða fyrir þessari hnignun stofnsins er að finna í ýmsum þáttum og má þar til dæmis nefna aukna útbreiðslu rauðrefs og ágang á búsvæði tófunnar. Fyrir í þessum görðum eru tófur af skandínavíska stofninum og vonast menn þar til þess að þeim muni lítast vel á nýbúana.
Ein tegund refa lifir á Íslandi en sú tegund hefur fjölmörg íslensk heiti en einna algengast er að tala um tófur, fjallrefi eða heimskautarefi. Talið er að tófan hafi sest að á Íslandi fyrir um 10 þúsund árum eða í lok síðustu ísaldar. Tegundina má finna allt í kringum Norðurheimskautið en útbreiðsla hennar takmarkast við svæði norðan barr- og birkiskógabeltisns. Tvö litaafbrigði er að finna í stofninum; hið hvíta og hið mórauða. Dýr af hvíta litaafbrigðinu eru hvít að vetri til en dökkmógrá á baki og niður með síðum en ljósgrá á kvið og innan á útlimum að sumri. Dýr af mórauða litaafbrigðinu eru flest dökkbrún allt árið þótt liturinn sé heldur ljósari á veturna en á sumrin.
Þeir sem vilja sjá meira af ævintýrum steggsins sem býr nú í Kristiansand og fengið hefur nafnið Keli geta séð frétt norska ríkissjónvarpsins.