Útrásarrefir

Umhverfi Skóli og frístund

""

Tófuparið Frosti og Flandra eignuðust myndarlegan hóp yrðlinga sl. vor.  Refafjölskyldan bjó á óðali sínu í refagirðingu Fjölskyldu- og húsdýragarðsins í sumar en þegar haustar yfirgefa yrðlingar óðöl foreldra sinna. Yrðlingarnir fengu örlitla hjálp í leit sinni að nýjum óðölum og dvelja þeir nú í dýragörðum í Noregi og Svíþjóð. 

Þetta er í fyrsta sinn sem starfsfólk Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sendir dýr til dvalar í öðrum dýragörðum en slíkt er alvanalegt milli dýragarða erlendis.  Áður en þau fóru utan gengust yrðlingarnir undir dýralæknisskoðun og fengu bólusetningar. 

Einn yrðlinganna fór í dýragarðinn í Kristiansand í Noregi og fjórir til Järvzoo í Svíþjóð.  Tilgangur flutninga milli dýragarða er fyrst og fremst að tryggja fjölbreytni innan stofnsins og fullvíst þykir að hinar brottfluttu tófur eigi sér enga blóðskylda ættingja í þessum görðum. Í Skandinavíu eiga tófur mjög undir högg að sækja.  Til dæmis er talið að í Noregi finnist aðeins um 50 dýr og eru tófur þar alfriðaðar.  Ástæða fyrir þessari hnignun stofnsins er að finna í ýmsum þáttum og má þar til dæmis nefna aukna útbreiðslu rauðrefs og ágang á búsvæði tófunnar.  Fyrir í þessum görðum eru tófur af skandínavíska stofninum og vonast menn þar til þess að þeim muni lítast vel á nýbúana. 

Ein tegund refa lifir á Íslandi en sú tegund hefur fjölmörg íslensk heiti en einna algengast er að tala um tófur, fjallrefi eða heimskautarefi.  Talið er að tófan hafi sest að á Íslandi fyrir um 10 þúsund árum eða í lok síðustu ísaldar.  Tegundina má finna allt í kringum Norðurheimskautið en útbreiðsla hennar takmarkast við svæði norðan barr- og birkiskógabeltisns.  Tvö litaafbrigði er að finna í stofninum; hið hvíta og hið mórauða.  Dýr af hvíta litaafbrigðinu eru hvít að vetri til en dökkmógrá á baki og niður með síðum en ljósgrá á kvið og innan á útlimum að sumri.  Dýr af mórauða litaafbrigðinu eru flest dökkbrún allt árið þótt liturinn sé heldur ljósari á veturna en á sumrin. 

Þeir sem vilja sjá meira af ævintýrum steggsins sem býr nú í Kristiansand og fengið hefur nafnið Keli geta séð frétt norska ríkissjónvarpsins.