Útimarkaður Íbúasamtaka Laugardals

Mannlíf Menning og listir

""

Nú styttist í hinn árlega útimarkað Íbúasamtaka Laugardals (ÍL). Í ár verður markaðurinn haldinn laugardaginn 29. ágúst kl. 11 - 16 á skjólsælu bílastæði í Laugardalnum í grennd við Laugardalsvöll. 

Á markaðnum má selja og kaupa allt milli himins og jarðar; föt, fínerí, geisladiska, grænmeti, leikföng, listmuni, húsgögn, handverk, heimagerðar sultur, bækur og ber.





 

Ávallt er mikið fjör á markaðnum enda eru skemmtilegar uppákomur stór hluti af aðdráttarafli hans. Öllum er velkomið að stíga á stokk. Svið og hljóðkerfi verður á staðnum og huggulegt kaffihús. 



Skráning seljenda er hafin á netfanginu utimarkadur@gmail.com. Í ár er boðið upp á bæði söluborðasvæði og skottsölusvæði. Seljendur koma með borð, stóla, fataslár og annað sem þeir þurfa við söluna. Þátttaka kostar litlar 2000 krónur og gengur greiðslan upp í kostnað við markaðshald (salerni, hljóðkerfi, svið, þóknun til tónlistarmanna, auglýsingar í fjölmiðlum, skreytingarefni og margt margt fleira). Markaðurinn fékk styrk úr hverfissjóði Reykjavíkurborgar í byrjun sumars 2015 og verður sá góði styrkur einnig nýttur til kostnaðar við markaðshaldið. 



Í anda vistvænnar stefnu útimarkaðarins hvetjum við alla markaðsgesti til að sækja markaðinn gangandi, hjólandi eða í strætó.



Lifi markaðsmenningin! 



Sjáumst í Laugardalnum laugardaginn 29. ágúst. 

Facebooksíða útimarkaðarins