Umsóknarfrestur um stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur rennur út 6. apríl

Stjórnsýsla Menning og listir

""

Nú styttist í að umsóknarfrestur um stöðu safnstjóra Listasafns Reykjavíkur renni út, en opið er fyrir umsóknir til og með mánudeginum 6. apríl. Staðan var auglýst um miðjan mars en ráðgert er að nýr safnstjóri taki við þessu stærsta listasafni landsins í haust. 

Hafþór Yngvason hefur stýrt safninu farsællega síðastliðin 10 ár, en samþykktir þess kveða á um að safnstjóri geti ekki gegnt stöðunni lengur en í tvö 5 ára tímabil. Listasafn Reykjavíkur hýsir þrjú megin söfn í þremur sýningarhúsum; safn Ásmundar Sveinssonar í Ásmundarsafni, safn Jóhannesar Kjarvals á Kjarvalsstöðum og safn verka Erró í Hafnarhúsi og hefur jafnframt umsjón með hátt í 200 listaverkum í opinberu rými.