Þjóðarátaki um læsi hleypt af stokkunum

Skóli og frístund

""

Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra hóf átak til að efla læsi með því að undirrita sáttmála þar um við höfuðborgina.  

Illugi og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu sáttmálann í Borgarbókasafninu ásamt Sigríði Björk Einarsdóttur fulltrúa SAMFOKs, fyrir hönd Heimilis og skóla. Undirritunin markar upphaf átaks um allt land sem miðar að því að efla læsi allra barna á aldrinum 2 - 16 ára. 

Við athöfnina flutti Illugi menntamálaráðherra, Dagur borgarstjóri og Skúli Helgason formaður skóla- og frístundaráðs ávörp og börn úr leikskólanum Tjörn sungu ásamt Ingó veðurguði sem flutti lagið Það er gott að lesa. Þá aðstoðuðu börnin ráðherra og borgarstjóra við að koma efni sáttmálans fyrir í Íslandslíkani sem fara mun um allt land. 

Í ávarpi sínu sagði menntamálaráðherra m.a. að taka yrði alvarlega vísbendingar um að læsi barna hefði hrakað og að í átaki til að ráða bót á því væri ekki ein aðferð betri en önnur. Læsi væri grundvallarþáttur í skólastarfi og átakið beindist að því bæta lestrarfærni til frambúðar. Þar yrðu allir að taka höndum saman.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri fagnaði þjóðarátakinu. Hann sagði m.a. að sérstök áhersla yrði lögð á að bæta læsi tvítyngdra barna og að tryggja bæri jöfnuð í skólakerfinu. Þá vakti hann athygli á því brautryðjendastarfi sem fælist í nýrri læsisstefnu fyrir leikskóla í borginni.

Skúli Helgason, formaður skóla- og frístundaráðs, sagði m.a. frá starfi fagráðs um læsi og sagði að til stæði að skima fyrir lestrarvanda strax í 1. bekk. Hann sagði að vart væri brýnna verkefni á vettvangi stjórnmálanna en að bæta læsi sem grundvallarþátt menntunar og þakkaði ráðherra framtakið.  

Meira um Þjóðarsáttmálann.