Starfsfólk frístundamiðstöðva lagði höfuð í bleyti

Skóli og frístund

""

Fjölmennt var í Gerðubergi í morgun á árlegri fagráðstefnu starfsfólks frístundamiðstöðvanna í borginni sem haldið er undir yfirskriftinni Höfuð í bleyti. 

Aðalfyrirlesari var Andri Snær Magnason rithöfundur sem fjallaði um lifandi lýðræði og kallaði hann erindi sitt Að ræða lýðræði er æði. Að því loknu hófust málstofur þar sem starfsfólk miðlaði þekkingu sín á milli um margvísleg fagleg málefni og áhugaverðar nýjungar í frístundastarfinu. Meðal þess sem fjallað var um í málstofum var hvernig haga megi stuðningi við börn á frístundaheimilum, heilsueflandi frístundastarf, spunaspil, hlutverkaleiki, stelpurokk, leiklistarsmiðjur, feminismi í félagsmiðstöð, fjölmenningarlegt frístundastarf og fleira. Sérhver starfsmaður gat setið fjórar málstofur og kynnt sér hinar margvíslegu hliðar fagstarfsins og hugmyndir um hvernig þróa megi það áfram. Eins og dagskráin ber vitni um er mikil gróska í frístundastarfinu í borginni. 

Sjá fjölbreytta dagskrá þessarar líflegu fagráðstefnu.