Grunnskólum borgarinnar verður slitið í næstu viku.
Skólaslit verða í grunnskólum borgarinnar 9. - 10 júní. Rúmlega 14.400 nemendur ganga þá út í sumarið á vit ævintýranna. Þar af eru um 1.300 nemendur að útskrifast úr 10. bekk en von er á um 1.700 börnum í 1. bekk að hausti.
Grunnskólar Reykjavíkur verða settir að nýju mánudaginn 24. ágúst.
Sjá skóladagatal fyrir skólaárið 2015 - 2016.
Sjá einnig fjölbreytt tilboð um sumarstarf fyrir börn og unglinga á vefnum fristund.is.