Skólaslit í næstu viku

Skóli og frístund

""

Grunnskólum borgarinnar verður slitið í næstu viku. 

Skólaslit verða í grunnskólum borgarinnar 9. - 10 júní. Rúmlega 14.400 nemendur ganga þá út í sumarið á vit ævintýranna. Þar af eru um 1.300 nemendur að útskrifast úr 10. bekk en von er á um 1.700 börnum í 1. bekk að hausti. 

Grunnskólar Reykjavíkur verða settir að nýju mánudaginn  24. ágúst.

Sjá skóladagatal fyrir skólaárið 2015 - 2016.

Sjá einnig fjölbreytt tilboð um sumarstarf fyrir börn og unglinga á vefnum fristund.is.