Fjórar skólahljómsveitir í borginni munu taka þátt í maraþontónleikum í Hörpu sunnudaginn 15. nóvember þar sem óskalög þjóðarinnar verða leikin.
Tónleikarnir standa yfir frá klukkan ellefu að morgni til klukkan sex að kvöldi og leikur hver skólahljómsveit í hálfa klukkustund.
Allar hljómsveitirnar verða með íslenska efnisskrá og þema tónleikanna er „Óskalög þjóðarinnar“ eftir samnefndum sjónvarpsþætti sem sýndur var á RÚV síðasta vetur. Þannig leikur hver sveit að minnsta kosti tvö lög af þeim 35 lögum sem kepptu um titilinn Óskalag þjóðarinnar. Í tilefni af þessum viðburði voru fjölmörg þessara laga útsett sérstaklega fyrir blásarasveitir og verða nokkur þeirra frumflutt á tónleikunum á sunnudaginn. Að sjálfsögðu mun sigurlag óskalagakeppninnar, „Þannig týnist tíminn“ hljóma á sunnudaginn ásamt lögum á borð við Bláu augun þín, Braggablús, Dimmar Rósir, Litla flugan og Jungle Drum. Auk þessara laga mega tónleikagestir eiga von á fjölbreyttu íslensku lagavali.
Flestar hljómsveitirnar sem fram koma eru af höfuðborgarsvæðinu. Hljómsveitir frá Akureyri og Neskaupstað leggja land undir fót til að taka þátt í skemmtuninni ásamt hljómsveitum frá Reykjanesbæ og Árborg. Alls er áætlað er að um 500 börn og unglingar láti ljós sitt skína í Norðurljósasal Hörpu. Kynnir á tónleikunum er píanóleikarinn góðkunni Jón Ólafsson sem einmitt sá um óskalagaþáttinn í sjónvarpinu síðasta vetur.
Aðgangur að tónleikunum ókeypis og tónleikarnir öllum opnir.
Það eru Samtök íslenskra skólalúðrasveita (SÍSL) sem standa fyrir viðburðinum með stuðningi frá Nótnasjóði STEF-s, Tónastöðinni, Félagi íslenskra hljómlistarmanna og tónskáldasjóði RÚV.

Hljómsveitir sem fram koma eru:
11:00 Skólahljómsveit Kópavogs A sveit
11:30 Skólahljómsveit Grafarvogs
12:00 Blásarasveit Tónlistarskólans á Akureyri
12:30 Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar
13:00 Skólahljómsveit Kópavogs B sveit
13:30 Blásarasveit Tónskóla Neskaupstaðar
14:00 Skólahljómsveit Austurbæjar
14:30 Skólalúðrasveit Árnesinga
15:00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar C sveit
15:30 Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts
16:00 Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar D sveit
16:30 Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar
17:00 Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
17:30 Skólahljómsveit Kópavogs ¬ C sveit

Meira um skólahljómsveitir Reykjavíkur.