Sjötugsafmæli Sameinuðu þjóðanna fagnað

Stjórnsýsla Mannlíf

""

Sameinuðu þjóðirnar fagna sjötuíu ára afmæli sínu í dag. Að því tilefni verða heimsþekkt minnismerki og byggingar um víða veröld allt frá Óperuhúsinu í Sidney til Píramídanna í Egyptalandi, Kristsstyttunni í Rio til Kínamúrsins flóðlýst í bláum lit. Hér á landi bregður bláminn birtu á friðarsúluna í Viðey, ráhúsið og dómkirkjuna í Reykjavík og forsætisráðuneytið.

Sama verður upp á teningnum í höfuðborgum Norðurlandanna þar sem  Litla hafmeyjan og Tivolí í Kaupmannahöfn, Ráðhús Oslóar, Globen í Stokkhólmi og Dómkirkjan í Helsinki verða umlukin blárri birtu, auk fyrrnefndu mannvirkjanna fjögurra í Reykjavík.



„Reykjavíkurborg sendir Sameinuðu þjóðunum afmæliskveðjur á þessum merka degi með því að lýsa upp ráðhúsið í bláum lit til heiðurs stofnuninni sem hefur frá upphafi – verið leiðandi afl í mannréttinda- og friðarmálum í heiminum,“ segir Dagur B.Eggertsson, borgarstjóri.



Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar á þessum degi árið 1945 og eru aðildarríkin í dag 193 talsins, en í upphafi voru ríkin 41. Tilgangur samtakanna er að viðhalda friði í heiminum og efla alþjóðlegt samstarf og öryggi. Stofnsáttmálar samtakanna eru fjórir; að viðhalda friði og öryggi í heiminum; að stuðla að vinsamlegum samskiptum milli þjóða; að taka þátt í lausn alþjóðlegra vandamála; að auka virðingu fyrir mannréttindum, auk þess að vera samráðsvettvangur þjóða.



„Ég er þakklátur aðildarríkjunum fyrir að sýna þennan áþreifanlega stuðning við 70 ára starf Sameinuðu þjóðanna við að koma á friði, efla þróun og vernda mannréttindi,” segir Ban Ki-moon, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna í fréttatilkynningu frá Sameinuðu þjóðunum. „Með því  lýsa upp heiminn í bláum lit Sameinuðu þjóðanna í einn dag, lýsum við upp leiðina til bjartari morgundags.”

Fjallað verður um þennan heimsatburð á samskiptamiðlum og verður notað myllumerkið

  #UNBlue auk  #UN70 og myndum og umfjöllun deilt með þeim milljónum manna sem fylgjast með starfi Sameinuðu þjóðanna á Instagram, Facebook, Twitter, Weibo, Flickr og víðar. Hægt verður að nálgast myndir og myndbönd  á UNIFEED og Flickr.

 

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um þessa heimsherferð og sjötugs afmæli Sameinuðu þjóðanna um allan heim hér: www.un.org/UN70.