Velferðarsvið Reykjavíkur og Rauði krossinn undirrituðu í dag, 2. nóvember, samning til þriggja ára um rekstur Vinjar sem er athvarf fyrir geðfatlað fólk. Kostnaður borgarinnar í samningi er áætlaður um 30 milljónir á ári.
Samningurinn tekur til sértækra þjónustuverkefna sem Rauði krossinn annast vegna þjónustu við fólk með fötlun í Vin, athvarfi fyrir fólk með geðraskanir, að Hverfisgötu 47 í Reykjavík. Um er að ræða þjónustu sem Rauði krossinn hefur veitt einstaklingum sem ekki hafa sótt aðra dagþjónustu sakir geðfötlunar.
Á samningstímanum verður unnið að því að festa Vin í sessi sem fræðslu- og batasetur þar sem áhersla er á notendasamráð og samstarf við aðila sem koma að batamiðaðri þjónustu fyrir fólk með geðfötlun.
Þá mun verða myndaður sex manna samráðshópur sem mun móta tillögur um framtíð Vinjar með tilliti til breyttra aðferða í geðheilbrigðismálum og þarfa þeirra sem sækja Vin. Í hópnum verða tveir fulltrúar frá Rauða krossinum, tveir frá velferðarsviði og tveir fulltrúar úr hópi þeirra sem sækja Vin. Hópurinn mun skila skýrslu í desember á þessu ári.
Starf Vinjar er síbreytilegt og er ætíð í samráði við fastagesti athvarfsins. Að jafnaði er opið sjö klukkustundir hvern virkan dag og ekki eru færri en tveir starfsmenn á vakt hverju sinni.