Röskun á ferðaþjónustu, heimaþjónustu og matarþjónustu

Velferð

""
Vegna veðurs verður röskun á ferðaþjónustu, heimaþjónustu og matarþjónustu í Reykjavík.
Samkvæmt Ferðaþjónusta fatlaðra verður ekki  tekið á móti pöntunum á ferðum sem er ætlað að fara eftir kl 14:00 í dag og er stefnt á að ná öllum farþegum heim fyrir kl 16:30 í dag. Mælst er til þess að farþegar sem eiga pantaðar ferðir eftir þann tíma að hafa samband við þjónustuver til að breyta ferðum eða afpanta í vefþjónustu akstursþjónustunnar. Það sama á við um akstursþjónustu aldraðra.
 
Dregið verður úr allri heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu frá tvö í dag og einungis bráðnauðsynlegum tilvikum sinnt. Kvöld- og helgarþjónustan  fer í allar nauðsynlegustu vitjanirnar fyrir klukkan fimm. Búið er að hafa samband við aðstandendur í sumum tilfellum og taka út kvöldlyf fyrir aðra.
 

Matarþjónusta gæti raskast á morgun

Væntanlega verður heimsendingu matar í dag lokið áður en veðrið skellur á hins vegar gæti orðið röskun á morgun,  þriðjudaginn 8. desember, ef spár ganga eftir.  Ekki verður byrjað á að senda mat í heimahús fyrr en versta veðrið er gengið yfir og orðið vel fært um borgina.
 
Í forgangi verður að senda mat í íbúðir aldraðara að Norðurbrún, í Lönguhlíð, Furugerði, og að Dalbraut 27.  Móttökueldhús á Aflagranda, í Árskógum, Bólstaðarhlíð, við Dalbraut 18-20,  í Hraunbæ, í Hvassaleiti, Hæðargarði, Sléttuvegi, á Vesturgötu og Borgir í Grafarvogi  gætu lent í töfum eða í versta falli að matarsendingar falli niður á morgun.
 
Vonandi þarf þjónustan ekki að fara úr skorðum en við það verður ekki ráðið gangi spár eftir.