Reykjavíkurborg framlengir rekstrarsamning við Leikfélag Reykjavíkur

Fjármál Mannlíf

""

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að framlengja með óbreyttum forsendum rekstrarsamning Reykjavíkurborgar við Leikfélag Reykjavíkur til næstu þriggja ára. Samningurinn tekur gildi frá og með næstu áramótum.

Samkvæmt fjárhagsáætlun menningar- og ferðamálasviðs fyrir árið 2015 nemur heildarframlag til starfsemi og reksturs Borgarleikhússins um 936 milljónum króna,  sem skiptist í rekstrarframlag að upphæð tæpar 553 milljónir og styrk vegna innri leigu og áhaldaleigu upp á tæpar 384 milljónir. Þetta er hæsti rekstrarsamningur Reykjavíkurborgar í menningarmálum.

Markmið Reykjavíkurborgar með þessum stuðningi er að í borginni sé rekið fjölbreytt og metnaðarfullt leikhús þar sem sett er á svið leiklist í hæsta gæðaflokki. Leikhúsið á að vera lifandi vettvangur nýsköpunar og kynningar á íslenskri leiklist sem höfðar til borgarbúa og gerir þeim kleift að njóta fjölbreyttra sviðslista.

Samningurinn gildir til ársloka 2018.