Fjórðu bekkingar í grunnskólum borgarinnar taka þátt í opnun Barnamenningarhátíðar sem brestur á í næstu viku. Þar verður m.a. flutt lag sem varð til í tilefni af 100 kosningarafmæli kvenna og heitir Það sem skiptir mestu máli og er samið af Sölku Sól og Gnúsa Yones.
Lagið Það sem skiptir mestu máli varð til í samstarfi við 1.530 fjórðu bekkinga í borginni. Í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna íhuguðu börnin mikilvægustu réttindi sín og settu þau í orð sem Salka Sól og Gnúsi Yones gerðu svo lag við. Lagið munu börnin syngja með höfundum og hljómsveitinni AmabaDama við setningu Barnamenningarhátíðar. Hver skóli mun auðkenna sig með lit og spjaldi með sínu réttindahugtaki.
Hér má hlusta á lagið Það sem skiptir mestu máli.
Sjá vef Barnamenningarhátíðar.